~~World Of Celeb~~

Celebin eru mætt á netið;) með allar klær úti..

23.12.2007 15:20:42 / celeb

Jólakveðja...

 Gleðileg Jól og farsælt komandi ár..

Þakka árið sem er að líða:)

Jólakveðja Ásdís

» 13 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 10:19:41 / celeb

Brúðkaup

Jáá... Síðustu vikur hér í IHS hafa verið ansi hressar...;)

Þetta byrjaði allt eftir að við komum heim frá Lanzarote þá var reyndar tekin ein helgi í algjöra slökun, á fimmtudeginum þar á eftir var fólk orðið ansi djammþyrst og fóru því næstum allir (allavega þeir hressu) á mjög hresst fimmtudagstjútt á Bob... Föstudagurinn var síðan rólegur með kökum í pæsen því að við máttum ekki reyna of mikið á okkur fyrir laugardeginum EN þá var planið að gæsa brúðina okkar hana Söndru! Við stelpurnar vöknuðum á laugardag kl 9 og lá leið okkar þá í náttfötunum, flestar með sængina og í gómsætann morgunverð í speglasalnum. Strákarnir hins vegar vöknuðu kl 7 og komu sér þá út á strönd í æsta leiki. En já síðan héldu stelpurnar út í bæ með brúðina og voru veigar hafðar meðferðis ásamt gettoblasternum.. Þar gaf tilvonandi brúður síðan kossa fyrir kossa. Restin af deginum er síðan e-ð í þoku en allavega borðuðum við hádegismat og upp úr því fórum við síðan í partysturtu;) Kvöldið var síðan ansi hresst en við hittum strákana á Cristians og urðu þar miklir fagnaðarfundir;) Flestir voru þá vaknaðir til lífs en einhverjir fengu sér smá fegurðarblund í miðju glensinu;)

Soffi síkáta
oggg ég líka...
Allir uppi á stólum að synda því að Baywatch er á fóninum!;)
Brúðurin í viltum dansi;)
Þóra, Sunna og Soffía hressar...

Eftir þessi herlegheit var náttlega haldin hugga á sunnudeginum en ég var orðin e-ð slöpp þannig að ég svaf myndina af mér:P og var síðan veik á mán og þrið:(  Það sem eftir var af viku æstumst við síðan í íþróttunum okkar ogggg fengum hlutverk fyrir brúðkaupið:D Mitt hlutverk í brúðkaupinu var að ég var ekkju ,,faster” eða föðursystir brúðgummans og átti ég alltaf að vera að gráta yfir öllum ræðum;) Ég reyndar stóð mig ekkert ofsavel í því og í brúðkaupinu ákvað ég að gera Thor sem sat við hliðina á mér manninn minn því að hann var líka einhleypur gambler;) Steinþór var síðan giftur Lousie og áttu þau að koma með e-ð íslenskt innlegg í þetta brúðkaup en þau gleymdu sér e-ð og ekkert varð úr því:S En ætlunin var að ljúga að dönunum að á brúðkaupsdaginn myndi fólk alltaf éta harðfisk;) En það er að eina í heiminum sem að ég helda að Danir gjörsamlga HATI!! Þóra var síðan rík gella og gift Mikkel sem að síðan ákvað að stinga hana af og fór heim, hún fattaði samt á síðustu stundu að Martin var orðin maðurinn hennar;) En þeim var boðið að misskilningi í brúðkaupið en ákváðu samt að skella sér í brúðkaupið og tóku Soffiu og manninn hennar Sohab Ali með sér. En Sohab er ponsulítill brúnn strákur með stingandi blá augu:P En þau voru líka ofsalega rík.

Lagardagurinn hjá mér, Soffíu og Þóru byrjaði síðan á ströndinni kl 2 í ofsagóðu veðri, með kassa af öli og ipod græjurnar. Þar var margt um manninn og skemmtum við okkur mjög vel og fengum reyndar nokkra góða gesti.

Athöfnin sjálf var samt óendalega fyndin enda horfið fólk á mig því að ég hló svooo mikið;) Siles var t.d brjálaður eiginmaður og átti hann mjög undirgefna eiginkonu hana Mette sem að var með svaka glóðurauga:) Hann var alltaf að öskra á alla og þá æstust fleiri upp þannig að úr þessu urðu slagsmál..Síðan var crasy fótboltaþjálfari, nakinn prestur, Brjálað fimleikafólk, klappstýrur og margt fleira;) Veislan var síðan ágæt og voru ýmsar uppákomur í henni manni leið svona næstum eins og maður væri í alvöru brúðkaupi en við fengum fínann 3 rétta mat og auðvitað brúðarköku sem að við Soffía hökkuðum svoo í okkur að við vorum að deyja í maganum eftir hana:D Þetta ofur party entist síðan e-ð fram eftir nóttu að venju:)

Thor eiginmaðurinn minn og mins;)
Ofur svalar....
Sohab og Soffía ánægð með eiginmanninn;)
Kim kjáni og Steinþór;)
Soffía, Sandre perri og Þóra:)
Þóra með fótboltabullunum, Huginn og Bjartmar..
Brúðhjónin:)

Við Soffía tókum okkur síðan til á Sunnudag og ákváðum að lita á okkur hárið þar sem að allavega ég var næstum orðin svarthærð og var það ekki að vekja lukku hjá mér. Þetta kom síðan út svona ansi páskagult og hugsaði ég þá mikið til þess að ég hefði nú átt að standa við gamla loforðið mitt að ég ætlaði aldrei aftur að lita mig heima:D En ég í gær skelltum við okkur í mikinn leiðangur út í bæ og keyptum nýjann lit þann ljósasta sem við fundum og blátt sjampó sem að bjargar þessu oft:P Við skelltum þessu síðan í okkur í gærkvöldi þar sem að mikil myndataka fer fram í skólanum í gær og við treystum okkur ekki til að hafa svoona páskagult hár á myndinni:) Þannig að núna erum við e-ð skárri þó að það sér soldin gul slikja á þessu:D

 

 Síðan verð ég að segja frá draum sem mér dreymdi þarsíðustu nótt!! Þetta var mikill hasar draumur sem snérist um það að ég ver heima hjá einni stelpu í skólanum og hún átti klikkaðann pabba, hann var að fara að ráðast á okkur en þá hlupum við inn á klósett og læstum okkur inni, hún tekur sig síðan til og ætlar að fara fram að tala við kallinn en ég er ennþá inni á klósetti. Þegar hún er búin að vera soldið lengi ákvað ég að fara fram og kíkja á hana en þá liggur hún í gólfinu og pabbi hennar ofan á henni og er að lemja hana í hakk!! Ég bregst auðvitað þannig við að ég stekk á pabbann og ætla að bjarga henni ég lem en þa er ekki að virka á hann þannig að ég opna munninn og být hann í bakið af öllum krafti!!! Ég vakna síðan við það að ég er að býta Steinþór greyið í bakið og hann skildi ekkert hvað ég væri að gera, ég fattaði að ég var e-ð klikkuð og baðst afsökunar:D Mjög fyndið skal ég ykkur segja:D 

En allavega þá er einhver skóli að koma að heimsækja okkur á morgun þannig að sá dagur verður e-ð í ruglinu og við sleppum við fyrirlesturinn líklegast sem er alltaf á fimmtudögum og er alveg drep leiðinlegur!! Díjj :D  

Síðan er kominn nóvember sem að ég er ekki alveg að fatta þar sem að það er alltaf um 12°C hiti hér og heitara þegar sólin skín;) Þannig að ég er alveg að fara að heimta afmælispakka múhahah enda er ég að verða 20 ára fjúfff!!!:D  

Jáá og síðan á sunnudaginn þá leggjum við í mikla ferð sem heitir teambulderuge en þá sjá teambulderanir um ferð fyrir okkur en þá erum við að fara að gista úti í nátturunni bara í svefnpoka líklegast þangað til á föstudag!! Og maður á að vera mjög vel búinn undir þessa ferð en við íslendingarnir erum auðvitað ekkert vel búin, ekki með dýnur og hvað þá gönguskó og risa bakpoka eða útivistarföt!! Leiter á þessa ferð sko...  

En allavega þangað til næst þá byð ég bara að heilsa og verðið dugleg við að kvitta þannig að ég verði kannski duglegri við að blogga;)  

Kveðja Ásdís;)


» 24 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 18:42:58 / celeb

Lanzarote...

ÚFF kominn tími á blogg...;) Að verða mánuður síðan að ég bloggaði síðast þannig að venju er margt að segja frá.

Núna er síðasta tímabili lokið en því lauk með svakalegri ferð til Lanzarote. Þar dvöldum við á geggjuðu íþróttahóteli sem heitir La Santa Club. Þar er allt til alls ef að maður er svaka íþróttamanneskja:P Annars þá var ég í surfi á fyrra tímabilinu þannig að á la santa var ég með surf sem aðalfag, reyndar vorum við allann tímann á brimbretti sem að var mjööööögggg gaman;) Vorum á geggjaðri surf stönd sem að heitir Famara. Dagurinn byrjaði venjulega á því að við tókum litla rútu þangað og var síðan surfað þangað til seinnipartinn og var þá brunað heim með fyrsta holli og tanað við sundlaugarbakkann, annars var mjög vinsælt hjá mörgum að tana bara á ströndinni sem var líka mjög nice;)Tvo morgna þurftum við reyndar að vakna um 7 í annað sinn til að æfa dansshowið okkar ógurlega og i hitt til að fara út að hlaupa:P

Annars vorum við í surfinu ekki með neina skipurlagða dagskrá eins og allir hinir í skólanum, sem var ágætt að mínu mati allavega:D Síðan var auðvitað drukkinn einn og einn öl inn á milli til að kæla sig niður. Herbergisfélaganir mínir voru reyndar ekkert mjög hressar en þá leitaði maður bara á önnur mið múhaha..

En allavega þá er byrjað nýtt tímabil og ég er búin að velja mér ný fög. Núna er ég í aerobik sem að ég held að lofi góðu allavega mikill sviti og læti þar býst ég við. Síðan er ég í fitness, en fyrsti tíminn var í dag og er mjög langt síðan að ég hef tekið svona vel á;) Það er líka ótrúlega spennandi en eftir þessi fög verð ég lika aerobik og fitness kennari;) Síðann er ég líka í ,,fa styr pa dit liv” úff ekki veitir af að fá reglu á lífið hihi.. En það er örugglega mjög gaman þó að maður þurfi þá að láta reyna á ógurlegu dönskukunnáttuna sína... oggg síðan er ég auðvitað ennþá í nuddinu á fullu að læra latinu og danska líffræði;) 

Ég man annars voða lítið hvað ég er búin að vera að gera síðan í síðasta bloggi:PVeit samt að næstu helgi ætla ég að fara til köben og hitta hana Esteri mína og Alla... Verður cosy að hitta einhver frá íslandinu:P Og fimmtudagurinn verður líklegast tekinn i smáá rúll;) Ég vil síðan fá fleiri gesti:/  

Annars þá er ég komin með nýjann herbergisfélaga hann Steinþór sem er fínt;) Þá getum við haldið huggur og boðið til okkar gestum hihi... 

Talandi um huggulegheit;)
Heimilisdýrið hann dóri liggur í rúmminu..
Steinþór og Soffía að hugga sér;)
Og mins, Steinþór og Dóri að hugga okkur;)

Hey þetta er örugglega styðsta blogg sögunnar hjá mér;) Ætla að halda áfram að nördast og já kannski koma myndir inn við tækifæri;) Þúsund kossar og miljón knúss:**

Ég vil síðan endilega fá fleiri bréf hihi.. Ykkar Ásdís... [9 vikur í að ég komi heim í dag] ;);)

P.s á meðan að þið á íslandi eruð að deyja úr kulda á rigningu þá er þetta fínasta haustveður hér í dk og sól aaaahhhhh;) *mont*


» 21 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 15:36:58 / celeb

Sönderborg...

Alltof lang frá síðasta bloggi og JÁ mjög mikið búið að gerast á síðustu 5 vikum.Skólinn byrjaði sem sagt þann 15 ágúst og var tekið á móti okkur og fengum við herbergi og herbergisfélaga. Herbergin eru nokkuð ágæt þó að rúmið sé um 70 cm:) Ég er síðan á gangi sem heitir 1.kort en við erum 18 á gangnum, saman höfum við sameiginlegt eldhús og við hliðina á gangnum mín megin eru klósett og hinum megin á gangnum eru sturtur. Í skólanum eru 5 gangar og gera þeir ýmislegt saman og þá sérstaklega fyrstu dagana þegar við vorum að kynnast. Síðan eru reglulegar haldnar gang huggur þar sem að gangurinn kemur saman og borðar kökur, grillar eða e-ð þannig. Minn gangur er samt ekkert svakalega hress en það eru ágætir krakkar inn á milli og þá aðalega strákarnir sem eru hressir, virka e-ð fúlar flestar stelpurnar vanalega:D Síðan erum við með einn pabba hér á ganginum sem er mikið eldri en við hin eða 25 ára og hann er hermaður í fríi frá hernum og hann er sko með allt á hreinu!!! Fyrst þegar ég var ekki með alveg allt á hreinu, vissi kannski ekki að það væri fundur eða e-ð þá var hann ekki lengi að koma og banka hjá mér og láta mig vita af því og já jafnvel bara skamma mig:P og hann lætur svona við alla hehe... mjög fyndið enda er hann kallaður pabbinn:) Hann er nú samt ekki elstur í skólanum heldur er er sú elsta 39 ára kona og síðan tveir kallar um þrítugt.Fyrstu dagana var ýmislegt sniðugt gert og vorum við aðalega að vinna með gangnum okkar og fórum á 2 dögum á 6 stöðvar og þurftum að leysa ýmsar þrautir að keppa í íþróttum og hlaupa á kvöldin hugguðum við okkur síðan og sungum. En söngur er stór þáttur í skólalífinu hér, ekki alveg minn kaffi bolli en venst ágætlega að syngja dönsk dægurlög hehe..

Skólinn og skólalóðin eru sko geggjað stór!!! Garðurinn er náttlega geggjað flottur með risastórum trjám og já örugglega ekkert mál að villast í honum. Eins og við séum bara úti í sveit en samt erum við líka frekar nálægt miðbænum:) Ströndin er síðan bara hérna alvg við þannig að það er ekki langt að bera brettin fyrir surfið:) Skólanum tilheyrir síðan stór íþróttasalur með stúku, þar fyrir utan er síðan risa “sandkassi” þar sem að er spilað strand handbolti og strandblak á 6 völlum. Síðan er speglasalur sem við dönsum oft í, annar minni íþróttasalur, margar kennslustofur, ræðusalur, lyftingasalur, sundlaug og örugglega margt fleira allavega er skólinn eins og völundarhús;)

Í byrjun völdum við okkur síðan fög fyrir fyrsta tímabilið ég valdi mér surf í aðalfag en inni í því er bæði vindsurf (vindbrimbretti líklegast á íslensku) og kitesurf (en þá er maður með risa stórann ,,flugreka” og í honum hanga 25 m langar línur og að lokum stendur maður á litlu bretti) síðan gæti verið að prufum venjuleg brimbretti á la santa:) Síðan valdi ég mér köfun í bifagi en núna er ég komin með köfunarréttindi niður að 18 metrum og ef ég þori fer ég niður á 30 metra.

Síðan er ég í sport massor eða íþrótta nuddi það tekur alla önnina og eftir það verð ég nuddari;) Þurfum samt að læra alla vöðva og bein á latinu og dönsku náttlega en það kemur samt á óvart hvað það er gaman að læra það. Síðan einu sinni í viku er verklegur tími og það er sko nice þá fær maður nudd í klukkutíma og nuddar í klukkutíma!! Að lokum er ég síðan í dönsku fyrir heimska útlendinga:D Segi svona.. en allavega eru það mjög cosy tímar kennarinn ótrúlega skemmtileg þó að það reyni nú kannski ekkert svakalega mikið á dönskukunnáttuna hjá okkur... mætti alveg vera meira allavega:)Á mánudagsmorgnum er alltaf fællesidræt en þá gerir allur skólinn e-ð saman. Venjulega er okkur skipti í nokkra hópa og þurfum að gera allskona þrautir. Við höfum t.d leyst allskonar verkefni í skóginum, farið að hlaupa, gert verkefni úti í garði og á ströndinni í ísköldum sjónum. Samt alltaf ótrúlega gaman í þessu.

Á þriðjudögum byrjum við á morgunsamlingi en þá er venjulega einn af kennurunum sem að pretikar e-ð yfir okkur öllum eða segir sögu og síðan er auðvitað sungið:P Á þriðjudögum er líka alltaf  meiri söngur og dans. Þá kemur líka allur skólinn smann og við byrjum venjulega á því að dansa allskonar samkvæmisdansa, kemur á óvart hvað það er samt ótrúlega gaman og maður dansar næstum aldrei við þann sama.Á miðvikudögum er líka morgunsamling en hún er öðruvísi að því leiti að þá sjá gangarnir um skemmtun stutt leikrit, bíómynd, söng og fleira. Þá er líka alsherjar hreingerningardagur sem ég reyndar slepp nánast við út ad nuddinu, og búgrupufundur og skólafundur. Á miðvikudagskvöldum er síðan fællesaften en þá hittumst við öll og gerum e-ð huggulegt eins og hittast niðri í pæsen sem er ,,stofan” okkar og þar er sungið og borðað kökur, höfum varðeld og fleira. Í kvöld á t.d að vera bingókvöld og á að mæta í ,,ömmufötum” ef möguleiki er hehe...

Á föstudögum er síðan fysiktræning sem fellst aðalega í hlaupi. En þar sem að það er mjög vinsælt af nemendum að fara út í bæ á fimmtudagskvöldum þá hefur skólastjórinn mjög gaman af því að pína þá sem að eru skít þunnir og lætur þá venjulega koma saman í hóp og þurfa þau kannski að gera armbeygjur og slíkt eða þá hlaupa lengri hring heldur en hinir sem voru heima.

Á kvöldin á virkum dögum er síðan mjög oft hægt að velja sér einhverjar íþróttir þeir sem það vilja.

Um helgar skiptast gangarnir síðan á að hafa skemmtanir og er þá dagskrá alla helgina og fest á laugardagskvöldinu í skólanum sem að er venjulega með þema. Þemanir hingað til hafa verið latínó, grískirguðir, fótbolti og síðast var minn gangur að skipuleggja og vorum við með lock a like þema eða vera eins og einhver frægur. Ég og tvær aðrar íslenskar stelpur Þóra og Soffía vorum auðvitað Sylvía Night superstar en reyndar þekti enginn af krökkunum í skólanum okkur;) héldu örugglega bara að við værum gleðikonur. Steinþór var síðan Romeo kærastinn hennar. Hinir voru síðan í mjög mismunandi og skrautlegum búningum mjög gaman;)

Stuttu eftir að skólinn byrjaði fórum við síðan með surfinu í ferð út á land held það heiti Burk havn en það er víst flottasti staðurinn í Danmörku til að surfa. Þar þrufuðum við að kite og var það mjög gaman þó að veðrið hafi ekki verið upp á sitt besta þessa helgi en það var skítakuldi og rigning mest allann tímann eða allavega á morgnanna þegar ég var úti. Á kvöldin var síðan bara drukkið öl og haft það huggulegt en við vorum með 5 kofa sem voru mjög huggulegir. Mins var í kofa með Sunnu, Antoníu, Áslaugu og Anne-Katrine sem er herbergisfélagi Áslaugar.

Síðan er ég líka búin að fara í köfunarferð en hún var við litlabeltið held að það sé við Fjón. Þar köfuðum við niður á 17 metra dýpi og hélt ég sko að það væri mitt síðasta. Einhver misskilningur var í gangi þegar að við vorum að fara upp og hélt Steinþór mér niðri því að hann hélt að ég væri að fljóta upp en ég var í raun að synda:P því að kennarinn var að gefa mér merki um að koma upp á ,,silluna” ég varð svo svakalega stressuð því að ég hélt auðvitað bara að ég myndi deyja þarna að ég var farin að ofanda og gráta held ég:) Ég losaði mig samt frá Steinþóri og kom mér upp á silluna og tók ég þá smá tíma í að ná að anda venjulega en ég var farin að anda á 5 földum hraða allavega. Síðan komst ég loksins upp á yfirborðið og var mér mikið létt. Ég ætlaði síðan ekki að fara aftur að kafa eftir þessa lífsreynslu en lét til leiðast og næsta köfun var mjög skemmtileg vorum niðri á c.a 9 metra dýpi og vorum bara í útsýnisköfun ekki að gera ljótar grímu og öndunaræfingar:D Síðan erum við líka búin að fara tvisvar í sjóinn hérna fyrir utann skólann en hann er bara eiginlega of grunnur. Síðan auðvitað tvær í sundlauginni sem er nú ansi léttara en með fullt af dýrum í kringum sig:D En eftir þessa ferð þá varð ég allavega open wather diver að 18 metrum;) sem er mjög nice...

Síðan er ég auðvitað líka orðin frísurfari en það þýðir að ég get orðið það mikið á brettinu að ég má fara út á sjó utan skólatíma og surfa. Veit nú samt ekkert hvort að ég eigi eftir að nota það en kúl titill samt hehe..

Ég er örugglega að gleyma að segja frá heilum helling enda er margt búið að gerast á þessum 5 vikum;) 

Annars er það fram undan að ef ég held áfram í köfun þá er ég að fara að kafa um nótt, kafa á móti straumi og köfun þar sem þarf að rata og já fara niður á 30 metra!! Eins og 17 metrar hafi ekki verið nógu langt:D Síðan í byrjun október erum við að fara til Ollerup og keppum þar í allskonar íþróttum við aðra íþróttaskóla t.d Aarhus þar sem að Þórfríður og Elísabet Ásta eru;) Ég valdi mér reyndar bara einhverjar smiðjur en þar lærum við dans og fleira sem ég man ekki:) Á föstudeginum eftir það þann 5 okt eru síðan flestir í skólanum að fara til la santa sem er á Lanzarote þar sleikjum við sólina og æfum okkur í þeim íþróttum sem við erum búin að vera að æfa. Eftir það tekur síðan við nýtt tímabil sem mér hlakkar mjög mikið til en þá ætla ég mér að velja aerobik instruktor, fitness instruktor, og e-ð eitt annað. Síðan ætla ég líka að taka helgarnámskeið til þess að verða hlaupaþjálfari líka;) Mjög spennandi allt saman...

Um helgina er síðan gestahelgi en ég var nú ekkert mikið að pæla í því þannig að það er enginn frá íslandi að koma til mín allavega en það gæti verið að Eva elska komi frá köben:D Örugglega mjög skemmtileg helgi fram undan allavega:D Síðan ef að einhver vill koma í heimsókn þá verðiði bara að láta mig vita;) Það er meira að segja hægt að leygja hús hérna fyrir utan aðalbygginguna og það er víst mjög nice og kostar varla neitt. 

Heimilisfangið mitt er síðan Idræthojskolen i Sonderborg, Friheds Allé 42 6400 Sonderborg allt með dönskum öum þ.e strik í miðjunni:P

 Fyrir þá sem að vilja senda mér bréf eða e-ð skemmtileg:) 

Kveð að sinni og lofa að láta heyra í mér oftar...og set síðan fljótlega inn myndir:) 

Ykkara Ásdís sem að saknar Íslands samt oggu poggu;)


» 21 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 22:29:43 / celeb

okí dókí hér kemur bloggggg.....

Okey sko!!!!

Erum við að tala um að það eru bara ár og aldir síðan að ég bloggaði díjj!!!!

En allavega skal ég reyna að stikla á stóru og segja frá því sem á daga mína hefur drifið síðustu 3 vikurnar eða svo:)

Þann 25 mai komu elsku rúsínu bollurnar mínar þær Guðný og Gerður til mín:D og var ekkert smá gott að fá þær;) við brölluðum ýmislegt, fórum í tivoli auðvitað, röltum strikið, versluðum, fórum út í bæ á djamm og já allavega skemmti ég mér alveg konunglega með þeim:D Við enduðum vegna misskilnings á einhverjum allt öðrum stað en við ætluðum að hitta íslendingana en það var síðan bara klikkó gaman þar:D Barinn var allavega að græða feitast á Razz kaupunum okkar:D Ég er síðan löngu búin að setja inn myndir frá þessari helgi hér til hliðar og þegar að mér dettur í hug eða kannski Gerði þá koma fleiri myndir inn;) Síðan fór ég í dýragarðinn á mánudeginum veivei:D sá fíl og gírafa hehe geggjó;)

Með stútinn á Park;)

Okkars og HC Andersen:)

Einn af fílunum sem vildi bara komast inn:)
Dúllurnar mínar í dýragarðinum:D
Mins og Júlía dúlla:**

Í þeirri viku held ég síðan að ég hafi farið út á miðvikudeginu... fór og hitti Evu og Möggu Rán og sátum við og drukkum öl á Hard Rock sem er alltaf jafn nice... Það kvöld endaði síðan á því að við fórum í bíó á Pirates sem var góð að mínu mati þó að ég hafi nú ekki skilið alveg allt og í þokkabót var ekkert hlé og ég alveg að pissa í mig yfir þessari 3 tíma mynd:P Við leystum það samt þannig við fórum í tveimur hollum þannig að við vissum hvað væri að gerast í myndinni;)

Úr bíóferð sem við fórum í um daginn:D soldið risavaxið allt..

En já síðan á fimmtudagskvöldið eftir þessa helgi 31 mai kl sirka 23:00 keypti ég mér miða heim til íslands og já!! Ég var farin að sofa um 2 og út á flugvöll kl hálf 6 morguninn eftir:D Soldið mikið flipp þar í gangi, og var ég mjög mikið á báðum áttum við að gera þetta.. EN ég var æst svo mikið upp og þá sérstaklega af Gerði minni;) En það var bara gott;) Ég var síðan með 3 sæti út af fyrir mig og svaf allann tímann rétt vaknaði þegar það var sirka 1 klst eftir og nartaði í matinn og sofnaði síðan aftur:D Síðan labbaði ég í gegnum flugstöðina og hitti Gerði og Hildi mína sem voru komnar alla leið að sækja mig:D og alveg rétt ég lét næstum engann vita af þessari óvæntu ferð minni heim vildi hafa þetta svona surprise;) Við brunuðum síðan í rvk stoppuðum í bakaríi og síðan beina leið heim á Selfoss alltaf jafn góð tilfinning sem að maður fær þegar maður er kominn svona HEIM, keyra yfir brúnna já! Síðan fórum við út í vinnu til múttu og já ég held að henni hafi brugðið soldið mikið, var ekki alveg að fatta að þetta væri ég og bara HA!!! Þú hér, hvað ert þú að gera hér??? Og við allar að deyja úr hlátri:D Síðan brunuðum við heim til Guðnýjar og hoppaði ég upp í rúm til hennar og knúsaði hana og var hún heldur ekkert að skilja hvað ég væri að gera þar:) Síðan héldum við áfram að fara í svona óvæntar heimsóknir sem var mjög gaman:D....

Síðan ákváðum við stöllur að fara út í Voge og kaupa efni þar sem að ég hafi nú verið í einhverju saumaflippi í vikunni áður... Fengum síðan húsið hjá ömmu lánað og sátum þar fram að kvöldmat og vorum að sníða og suma.. læt myndir fljótlega inn af afrekum okkar;) kom nokkuð vel út verð ég að segja:D Um kvöldið borðaði ég síðan hjá Gerði og fór út á krúsina með Hildi, very nice:D

Ég vaknaði síðan heldur snemma á laugardaginn og fór í plokk og lit díjj loksins, var sko ekkert að fara að treysta þessum dönsku konum fyrir þessu:) Og síðan kom Helga elskan mín og sótti mig á Selfoss og eyddi ég deginum með henni á rölti um höfuðborgina;)

Síðan æstu stelpurnar mig upp í að koma á ball með þeim út í þorlákshöfn já! Humm mér fannst nú ekkert spes verð ég að segja enda þekti ég mjög fáa þarna inni.. Hefði örugglega getað skemmt mér betur ef ég hefði lagt mig fram en æj það var svo sem ágætt að bruna bara aftur á Selfoss um 2:) Ég rúntaði síðan með drivernum minum og mr. Dauðum um götur Selfossar, fór í pulló sem er best! Í heimsókn til Guðnýjar í Esso og síðan fyrir utan pakkhúsið að hitta Esteri mína sem að var btw með frussu túr á hendinni.. hehe já mjög sérstakt get ég sagt ykkur:D Minnir síðan að sunnudagurinn hafi einkennst að af leti, fór reyndar aftur í Rvk að skoða í búðir sem að ég skil ekki alveg því að ég er sko alltaf að því hér í dk:D enda búin að tvöfallda það magn af fötum sem að ég kom með hingað í byrjun samt var ég með yfirvikt þá:P Síðan var bara brunað í flug um kvöldið og fékk ég aftur 3 sæti sem er mjög nice og aftur svaf ég alla ferðina og vaknaði ekki einu sinni í mat:D...

Gerður var svona hress á balli:D

Á fimmtudaginn í síðustu viku byrjaði síðan þetta geðsjúklega góða veður og síðan þá er sko búið að vera næstum 30°C hiti og SÓL!!!! Og já þá kom líka Steinþór í heimsókn... Um kvöldið fórum við síðan með Evu í tivoli og þar var farið í öll tækin auðvitað og mottó kvöldsins var að það var bannað að halda sér!!!!!! Mjög gaman :D Síðan var öskrað og Drukkin bjór í líters glösum ef það má kalla það.. ég myndi heldur segja að þetta hefðu verið tunnur:D Steinþór skoraði síðan á okkur Evu að ef við myndum klára sitthvora krúsina á innan við 7 min myndi hann bjóða okkur upp á aðra! Leikurinn byrjaði jafn og á 3 min vorum við báðar hálfnaðar, eftir því að að leið á varð þetta samt erfiðara en ég rétt náði að sturta þessu í mig á tímanum 6:54 held ég :D:D og næstum búin að æla í endann og já ég öskraði líka e-ð:D

Almennilegur bjór ekki satt???

Á föstudaginn fórum við síðan út í bæ með Evu og Hjördísi og vorum við mestmegnis að hanga á ráðhústorginu en það var líka bara mjög gaman:D Razzinn var með í för og varð Eva sérstaklega hress af honum:D Við fórum síðan á e-ð pöbbarölt en í mynningunni einkennist þetta kvöld samt mest af því að éta og fíblast;)

Eva sæta var svona Hress:)
Hjördís skvís var líka kát og frænka hennar:)
Þessi var sko líka hress:D

Á laugard vaknaði ég síðan með ragettu í rassinum og þaut um allt húsið og tók til þar sem að það var engu líkast nema það hefði verið varpað kjarnorkusprengju uppi og úti í garði. Það má kannski skýra með því að Jóa móðursystir min og famelían hennar vorun í heimsókn hjá okkur eða Hrund réttara sagt og við vorum því 12 í heimili um helgina.. Síðan fórum við út í bæ og hittum Hjördísi en sumir voru svo þunnir að þeir meikuðu bara ekki að vera út í bæ og fóru heim eða þá að þeir meikuðu ekki að labba um og vildu bara sitja undir sólhlíf og drekka vatn:D Eg var aftur á móti mjög hress...;) Reyndar var orkan mín gjörsamlega búin um 11:S og steinsofnaði ég uppstríluð tilbúin til að fara út í bæ og já ég vaknaði bara ekkert aftur og ef ég vaknaði þá sofnaði ég bara strax aftur:S æjj svo sem ágætt að fara bara snemma að sofa því að daginn eftir tók við langur og strangur dagur í sólbaði úti á strönd... og ummmm... það var svooo gott:D og fékk ég massað far eftir bikiníið loksins;) Það var sko nákvæmlega sama stemming úti á strönd og er á spáni eða hvar þar sem að fólk fer að sóla sig.. ekki slæmt það;) síðan var étinn ís sem er best í svona miklum hita...

Á ströndinni:D
Smá af ströndinni við vorum samt þar sem var geggjað lítið fólk,
annars var hún sko stöppuð af fólki...

Í Þessar viku er ég síðan búin að reyna að vera í átaki eftir óhollustu helgarinnar:D fór reyndar í heimsókn til Esterar og Kristínar í gær en þær voru að flytja hingað sem er mjög nice;) Hlakkar svo til að hangsa með þeim í sumar hér:D En já þær buðu allavega upp á þetta smánammi sem að ég hakkaði í mig:P Annars þá búa þær á kollegi sem heitir Solbakken og já í ansi nýtískulegri íbúð *hóst* (artí fartí partí) Aðal liturinn er sem sagt appelsínu gulur og eiga þær hina ýmsu hluti í þeim lit og já síðan sofa þær ekki í rúmi heldur á dýnu sem að liggur ofan á bjórkössum:D Síðan við hliðna á húsinu er risa kvennafangelsi og kirkjugarður:D geggjað töff sko;)

Já í gær fór ég líka á sumarfest í leikskólanum hjá tvíburnunum og hélt að það væri í svona 30 min eða svo en nei ég var föst þar í 3 klst og ÞURFTI að taka þátt í einhverjum dönslum leikjum sem ég skildi ekki baun í og síðan hlusta á fyrirlestur um það hvað hreyfing og leikir væru mikilvægir fyrir börn, ég skildi btw ekkert enda allt á dönsku. Konan hótaði mér síðan að fara með allann fyrirlesturinn aftur (hann tók sko meira en 30 min) á ensku en ég rétt náði að hlaupa út úr stofunni og fela mig í sandkassanum áður en hún sá mig:D og slapp því...

Í dag er ég síðan bara búin að vera að undirbúa komu Helgu minnar sem að er bara að koma eftir 6 klst þegar þetta er skrifað;) En hún ætlar að eyða helginni hérna hjá mér og er stefnan tekin á allt þetta venjulega, tivoli VERSLA og svo frm;) Það verður sko geggjað gaman hjá okkur alltaf svooooo nice að fá vinkonu sína til sín eftir langann tima..Segi frá því seinna;)

Þetta blogg er víst orðið ansi langt... og held ég því að ég ætti að reyna að sofna ég sem að var að deyja úr þreytu áðan!!!!

En allavega þá ykkur að segja á ég miða heim til Íslands eftir viku þann 21 juni:D og held ég að Guðný ætli að vera svo elskuleg að pikka mig upp á flugvellinum:D ég verð heima allvega í 2 vikur, en ég á aðeins eftir að pæla í þessu betur..væri nú ekkert vitlaust hjá mér að reyna að finna mér smá vinnu í þessu fríi minu en ég þarf ekki að passa aftur fyrr en 16 júli...:)  Hlakka svo til að koma heim og taka svona alvöru sumardjamm og kíkja kannski til Víkur er bara komin með fráhvarfseinkenni og svitaköst því að ég hef verið þar síðustu tvö sumur:D

Síðan byrja ég kannski að sauma bráðum aftur annað hvort um helgina, í fríinu heima á íslandi eða í seinastalagi þegar ég kem aftur hingað til DK... En ef það langar einhverjum í peysu má hinn sami alveg láta mig vita því að það gæti vel verið að ég saumi þá á hinn sama peysu á e-ð slikk;) Er allavega búin að sauma og selja eina peysu hehe...og síðan eru fleiri í býgerð, allavega búin að gera 6 flíkur:) 

Peysan hennar Guðrúnar:)
Diskó peysan, á kannski eftir að útfæra hana betur:P

Já hætta alveg rétt.... ég vil allavega sjá komment núna víst að ég hafði fyrir því að skrifa svona mikið;) :D 

Kveðja ÁsdísDanskaSemAðKemurÁÍslandEftirViku!!! 

Kossar og knús:******************


» 25 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 15:40:25 / celeb

Nýtt áhugamál....

Langaði bara að deila með ykkur því sem að ég er búin að vera að dunda mér við í vikunni... En mér datt það sem sagt í hug á sunnudaginn að mér langaði að fara að sauma... Já hef nú ekki saumað síðan í grunnskóla en síðan á ég náttlega ekki saumavél þannig að ég bjóst við því að það gæti nú ekki orðið mikið úr þessu... En síðan var ég e-ð að segja Hrund frá þessu og haldiði ekki að hún hafi ekki bara átt saumavél og á þeirri stundu fór hugmyndaflug mitt á fullt og ég átti erfitt með að hemja mig enda allar búðir lokaðar á sunnudögum.. ´

Á mánudaginn fór ég síðan og keypti mér efni og er búin að vera að dunda mér við þetta síðan.. Er sem sagt búin með 2 peysur eða hvað maður kallar þetta... Og byrjaði á þriðju í morgun en get ekki klárað hana því að mig vantar stroff og allt efnið er að verða búið:(

En ég læt fylgja nokkrar myndir af þessu.. líka þessari sem er ekki búin en á hana vantar sem sagt ermar/stroff og stroff að neðan..

Peysa með hettu og stroffi..
....
Peysa með svart/giltri blúndu og kaga
Hér sérst blúndan betur..
Þessi er síðan ekki búin vegna efnisskorts:P
Þessi er sem sagt með hettu og munstraða efnið er inni í henni..
Á hana vantar síðan ermar og stroff að neðan..
Set inn aðra mynd þegar hún er búin:)
Síðan vildi ég bara segja ykkur að þegar ég vakna á morgun þá koma Guðný og Gerður til mín VEIVEIVE.. Er sko búin að bíða lengi eftir því og núna eru þær loks að koma..:D Við ætlum síðan að bralla ýmislegt um helgina og gef ég nánari skýrslu af því seinna...
En allavega eigið góða helgi og MUNIÐ að kvitta
Kveðja Ásdís Saumakona;)

» 29 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 19:24:29 / celeb

Eintóm gleði..

Blogg segiði??? Hér hafiði blogg!!:lol:

En já heldur betur margt skemmtilegt búið að gerast síðan síðast.. 

Það helst var það að Eva flutti hingað út í Köben og er ég því búin að vera svo heppin að njóta hennar félagsskaps:D Byrjuðum Euro-helgina vel eða á fimmtudegi, horfðum á megnið af undankeppninni og kíktum síðan aðeins út á Sam´s bar sem er svona kariokibar á strikinu sem að allir túristar sem komið hafa til köben ættu nú að þekkja.. En ég fór síðan bara snemma heim enda þurfi ég að passa morguninn eftir..

Föstudagurinn var síðan heldur hressari en hann byrjaði á miklum hremmingum, því það tók mig næstum 2 klst að koma mér út í bæ *arg* það var verið að laga lestarteinana hjá minni stöð þannig að maður þurfti að taka s-tog bus og e-ð vesn sem að tók náttlega heila eylífð sérstaklega af því ð hann kom ekki fyrr en eftir klst. eða svo. En ég náði út í bæ á endanum og þá fengum við okkur einn eða tvo kæmpeøl.. Við stoppuðum á nokkrum ølhúsum en í rugli löbbuðum við inn á Dubliner sem er svona írsk krá eða e-ð og ég get svo svarið það að við vorum næstum einu kvennmennirnir þarna inni og það endaði þannig að við vorum komnar með heit fótboltalið frá englandi upp á eftir okkur e-ð Liverpool eða e-ð þannig hvað sem það hét..:) Með þeim fórum við síðan á klúbb sem heitir Jazz house þar voru þeir e-ð að rugla í okkur og á endanum stungum við þá af og tókum taxa á Vega sem við fengum frímiða (armband) en kærasti systir Evu var að dj-ast þar, þar hittum við helling af fólki og vorum alveg að gera það gott í því að finna okkur danska vini en það var takmark kvöldsins:D Við stóðum okkur nokkuð vel en enduðum samt á því að hitta nokkra íslenska krakka og fórum með þeim á pöbb á Norrebrø..

Síðan kom Laugardagurinn og var okkur búið að hlakka endalaust mikið til.. Horfðum á Euro hjá Evu eftir mjög skrautlega ferð frá mér til hennar (En ég tók sem sagt strædó-lest-leygubíl-strædó-lest-lest og labbaði fer ekki nánar út í það) En ég komst á leiðarenda og við byrjuðum að hella í okkur Razz sem er btw baneytrað helvíti, við fórum síðan í party hjá íslensku strákunum og .... já ég komst ekki lengra en það heldur fór heim snemma með taxa. 

Síðan skruppum við í bíó á Mánudaginn og sáum Blades of Glory hún var alveg ágætis afþreying:D Myndin byrjaði ekki fyrr en 9 og við svo miklir íslendingar að við vorum mættar fyrir 8 þannig að við sátumst bara inn á pöbb og höfðum það huggulegt;) 

Helgin er síðan búin að vera þvílíkt löng en hún byrjaði á miðvikudag þannig séð því að það var frí á fimmtudag og föstudag.. á miðvikudaginn kíkti ég út og hitti Evu út í bæ en hún var þar með systir sinni og vinum hennar þar lentum við í ansi hressum gömlum köllum (vinum kærasta systir evu) sem að voru bara ástfangnir af okkur og vildu helst giftast okkur og voru tilbúnir til að fara í botox til að þeir yrðu unglegri fyrir okkur... en við vorum nú ekki jafn heillaðar af þeim og þeir af okkur... Síðan kynntumst við fleiri íslendindum á þessum pöbb sem var very nice;) Ég var síðan klárlega beiler kvöldsins þeim til mikillrar óánægu og vanlíðan en ég fór heim um 12 til að ná lestinni en ég hljóp niður allt strikið til að komast á réttum tíma.. sem ég náði auðvitað..;)

Síðan átti ég líka að mæta hjá Rasmusi einkaþjálfaranum mínum kl 10 um morguninn.. og gat ekki beilað á því:D Það gekk mjög vel hjá honum ég var reyndar pínu stress þegar ég kom enda vissi ég lítið um það hvað ætti að gerast í þessum tíma.. En ég losnaði nú fljótt við það þar sem að þjálfarinn var (virkaði það allavega) mikið stressaðari en ég!!! Hann gat t.d ekki skrifað eitt orð á planið mitt rétt og er það allt út í krassi:P hehe...Síðan fór hann að segja mér að hann hefði einu sinni átt kærustu frá Íslandi og að hann gæti sagt: Til hamingju með afmælið! Ég bara já okey töff.. síðan heyrðist í honum: Þú ert falleg! Og ég sagði í djóki: ohhh thank you!!!!! Og hann varð alveg rauður í framan:D Síðan var hann mjög hissa á því að ég vildi æfa 5 sinnum í viku og að ég kynni lang flestar æfingarnar sem að ég átti að gera..Sagði að ég væri draumakúnni og hann vildi að allir væru eins og ég humm smjaðrari:) Og í stað þess að hann sýndi mér æfingarnar átti ég að sýna honum en það gekk samt mjööggg vel og þrælaði hann mér út með mjög miklum þyngdum díjj og ég ekki búin að lyfta í marga mánuði! og ég er sko með harðsperrur!!!! Síðan á ég að hitta hann aftur eftir 4 vikur og fæ þá nýtt prógramm og mikið hlakkar mig til að sjá hvort að þetta beri einhvern árangur:)  Veit allavega að til þess þarf ég að fara að lifa aðeins heilbrigðara líferni um helgar:S 

Föstudagurinn fór síðan í endalaust labb:D en við þræddum nokkrar búir á strikinu og ég btw verslaði ekki neitt, er ekki alveg að standa mig kannski er ég bara að bíða eftir að stelpurnar komi næstu helgi og æsi mig upp í e-ð brjálað verslunar skap.. Fengum okkur að borða á ítölskum stað og sátum úti í þessu geðveikt góða veðri sem var, þjónninn okkar var síðan e-ð skotinn í okkur díjj og þegar við fórum gaf hann okkur voða sæta hjartasleikjóa til að tjá okkur ást sína!! Síðan settumst við inn á Hard Rock eftir meira rölt og fengum okkur kokteila á happy hour sem vara líka mjöööggg nice of gott.. Síðan var bara ekkert annað í stöðunni en að skella sér í tivoli og vorum við Eva svo kræfar að við keytum okkur árskort;) þannig að ef að þið komið til köben þá vitið þið hvar mig er að finna ég verð í tivoliinu;) síðan fengum við okkur auðvitað turpas og þræddum garðinn.. ég fór reyndar ekki í nema 3 tæki og það var auðvitað geðveikt!!! Bara alltof margir í tivoliinu þannig að það voru endalausar raðir:S (Enda þessi fríhelgi) Fallturinn er auðvitað klikkað skemmtilegur en Eva kjúklingur þorði ekki í hann...:) Rússíbanin er samt alltof stuttur ég hefði verði til í að fara svona 10 ferðir samfleitt:) Rugl samt hvað það er okrað inni í þessu tivolíi en allur matur er á uppsprengdu verði og er ekki einu sinni góður eða allvega ekki pitsan sem að ég panntaði mér sem að var síðan hálfmáni...:D Við fórum ekki út úr tivolíinu fyrr en um 11 og fórum þá heim til Evu að finna okkur smá til.. Síðan er bara rugl mikið af íslendingum búnir að vera hér um helgina ég get svo svarið það að ég á rölti mínu um strikið heyrði talað jafn mikla íslensku og dönsku. Veit ekki en kannski tengist það e-ð Glitnirs maraþoninu sem er hér um helgina eða þá bara að  fólk er æst í köben;) sem er ekkert ósennilegt:D Við fórum síðan á e-ð pöbbarölt og fórum á annann Sam´s bar ofar á strikinu.. Þar var þessi tjúttaða stemming og fullt af fólki sem að kunni ekki rass í bala að syngja... vá hvað það fer í taugarnar á mér að hlusta á fullt fólk sem að heldur að það getur sungið vera e-ð að væla í míkrafóninn, hinum sem eru á staðnum til mikils ama:D en annars var þetta alveg fínt;) Síðan þegar að ég ætlaði að fara heim um 4 ákvað ég að koma við á mcdonalds í leiðinn og fá mér mcflurry vei það er auðvitað best.. síðan elti mig einhver gaur langleiðina að lestarstöðina sem var soldið skérí!  Síðan þegar ég var laus við hann og kom inn á lestarstöðina þá byrjaði annar gaur að elta mig og spurja mig hvort að ég væri ekki rík! Ég neitaði því nú og reyndi að hrista hann af mér ekki tók þá betra vð því að næst kom einhver sódsvartur kall og byrjaði að tala við mig spurja út í lestarnar og og hvaðan kærastinn minn væri ég var náttlega skíthrædd við hann og laug því að honum að ég ætti kærasta frá íslandi og hann var voða svektur yfir því held samt að hann hafi ekki vitað hvar ísland væri! Síðan eftir 30 mín bið kom loksins lestin meðan ég sat í henni komu síðan tveir gaurar á gluggan með einhverju millibili og voru e-ð að kyssa gluggann minn:S díjj þetta lið... Síðan var ég ekki sátt þegar að gaurarnir sem sátu fyrir framan mig í lestinni byrjuðu að reykja díjj og það má sko ekki reykja í lestinni en þeir voru e-ð ofur harðir greinilega.. kunnu líka litla ensku og ég lét því á reyna og reyndi að tala við þá dönsku það gekk nú ágætlega svo sem vona samt að ég fari að læra þetta tungumál e-ð:) 

Eva að sötra á einum ísköldum og hættulega góðum kokteil...
Eva og gaurinn sem ég man ekki hvað heitir (vinur, vinar Evu) inni á Sam's bar..

Kvöldið er síðan alveg óráðið gæti bæði verið róleg heima og endað á sveittu djammi út í bæ.. bæði betra:D 

Síðan á Guðný afmæli á morgun skvísan er að verða 20 ára og því verða allir að óska henni til hamingju með daginn;) Ekki slæmt núna getur skvísan farið sjálf í ríkið og komsist inn á flesta staðina í rvk án nokkurs vesens;) Ekki það að það hafi verið vandamál hingað til samt...Veit það allavega að hún er þessa stundina með honum Fúsa sínum og auðvitað er hann að dekra við prinsessuna sína enda ekki annað hægt;)Hundleiðinlegt samt að fá ekki að djamma með henni í kvöld og vera með henni á afmælisdeginum örugglega fyrsta afmælið hennar í 18ár sem að við hittumst ekki neitt..:( En TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKI GULLIÐ MITT!!! LOVE YOU BIG TIME!!!

Skötuhjúin í teiti hjá mér um daginn;*


Og síðan á Magga kona Gústa frænda líka afmæli og fær hún líka eitt stórt knús frá mér:* 

En Guðný og Gerður eru að koma til mín eftir 5 daga!!!! Díjj hvað það er stutt ég fæ bara sting í magan þegar ég hugsa út í það mig hlakkar svooo mikið til að fá þessar elskur mínar!! 

Síðan koma Ester og Kristín út 12 júni ekki einu sinni mánuður í það og verða þær í sumar.. Það verður náttlega geggjað þá fara dagarnir að verða ævintýri aftur eins og þeir voru áður en að ég kom hingað hihi:D 

Síðan er Helga bjútí búin að kaupa sér miða til mín 14 júní og vá hvað það verður gaman, æði að eiga svona góða vini sem að koma alla leið til köben í heimsókn til mans.. ég bíð síðan bara eftir því að hinir sem ætla að koma bóki sér flug;) hihi... 

En ég sé það núna að ég verð greinilega að blogga oftar því að þetta blogg er alltof langt!!!! Er ekki viss um að nokkur nenni að lesa það einu sinni.. díjjj Gæti örugglega haldið áfram að skrifa í allt kvöld er með ,,munnræpu” ef það má kalla.. 

En ég fer allavega fram á það að fólk haldi áfram að kvitta!!!!

Haldiði kúlinu og elskið friðinn!!! 

Kveðja ÁsdísDanska!!:*


» 21 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 23:37:40 / celeb

Sól, sól skín á mig;)

Hæææææææ

Okey fyrsta mál á dagskrá!! Ég er sko búin að brosa hringinn alla síðustu viku en ég er á leið í lýðskóla í haust og ætla að læra einkaþjálfara:D Og ég fæ allt frítt og borgað af Umfi ekki slæmt það.. Skólinn byrjar um miðjann ágúst en ég er samt að hugsa um að kíkja kannski pínu heim áður víst að ég fæ flugið hvort eð er frítt..síðan í haust fer skóinn í ferð til Lanzarote og ég er búin að skoða hótelið og það virkar klikkað flott.. Er svona íþróttahótel og er aðstaða til að stunda allar íþróttir í heimi þar og líka kafa og mig hlakkar sko mikið til þess að læra það;) Ég verð síðan þar fram að jólum og veit síðan ekkert hvað tekur við eftir það.. Kannski get ég byrjað í tannsanum þá eða þá að ég fer að vinna annað hvort hér í DK eða heima á Íslandi.. Leyfi því bara að ráðast þegar að því kemur...En annars fer ég bara í tannsann næsta haust:D

Gaman að segja frá því líka að það eru fullt af íslendingum að fara í svona lýðskóla mynnir að kallinn hjá Umfí hafi sagt 100;) og það eru e-ð um 10 í mínum skóla... Þetta verður bara spennó;)  

Síðan verð ég bara að segja frá því að það er búið að vera geggjað veður (þangað til í gær reyndar) Bara sól og meira en 20° hiti alla helgina og e-ð í síðustu viku og er ég bara að verða eins og einhver negri;) hehe kannski næstum... 

En já síðan í síðustu viku gerðist e-ð voða lítið fór bara í gymið og reyndar tók ég lestina ein út í bæ og hitti Fríðu og við röltum um strikið í góða veðrinu og skoðuðum búðirnar sem eru nú ekki af verri gerðinni.. Helgin var síðan löng þ.e frí á föstudeginum og hef ég ekki hugmynd um af hverju það var frí og ekki heldur Hrund..En ekki kvartaði ég yfir því:) Þannig að ég var bara mjög róleg (já veit ekki hvað er að gerast) og svaf bara lengi og hékk líklegast e-ð í tölvunni og auðvitað var í sólbaði, labbaði á ströndina og það sem fylgir þessu ljúfa lífi:) Síðan fórum við í matarboð hjá nágrönnunum á sunnudagskvöldið og var það nú bara ágætt kannski fyrir utan það að það er alltaf skemmtilega vandræðalegt;) ég verð alltaf svo kjánalegt þegar fólk reynir að tala við mig dönsku eða bara ensku:) hehe... 

Krakkarnir eru síðan alltaf jafn mikil krútt, Júlía er gjörsamlega búin að taka ástfóstri við hommann sem að ég fékk í kveðjugjöf frá Guðný og Fúsa og sleppir honum helst ekki, fer með hann í leikskólann og allt... En ég náði honum aftur í dag og er hann hér að kúra hjá mér:) loksins *fjúff* Síðan er Daníel reyndar e-ð að reyna að færa sig upp á skaftið og er e-ð að rífa kjaft við mig en ég skil hann hvort eð er ekki þannig að mér er alveg sama ég sendi honum bara *reiðasvipinn* kannski einhverjir sem kannast við hann hehe:) 

Já síðan eru Gerður og Guðný bara að koma eftir 2 vikur jii hvað tíminn líður hratt.. og síðan eru allar helgar bókaðar þangað til að ég kem skjálf heim í kringum 22 júni í eins og 2 vikur en ég ætla að koma mér aftur hingað til Köben áður en hróaskelda byrjar en það verður náttlega aðeins of gaman þó að ég sé enganvegin típan í svona sveittar útihátíðir en jú það verður fjör;) Síðan er ég í fríi í vikunni eftir það og veit ekki alveg hvað verður gert þá, kannski nota ég hana bara í að ferðast e-ð hér:) Finna þessar sundlaugar sem að fólk bennti mér á í síðasta bloggi;) og hver veit nema að einhver heimsæki með og komi með mér... vei vei vei

Síðan er ein af betri djamm helgum ársins framundan Eurovision helgin víjjjj:) En ég verð ekki á íslandi til að að partydýrast með mínum ástkæru vinum, Gerður gerir t.d í því að segja mér hvað það eigi eftir að vera gaman hjá henni (að því undanskildu að ég verð ekki með) hehe En ég verð þá bara á djamminu hér í köben en við Eva sem var btw að flytja hingað í dag ætlum að reyna að hittast og taka smá eurotjútt á þetta:) ógó gaman pottþétt... 

En nóg komið af rugli í bili læt fylgja með nokkrar myndir sem við krakkarnir tókum í webcam í dag en þau elska það gjörsamlega að sjá sig í tölvunni;)

 Jónas og mins að brosa:)
Júlía og Jónas dúllur..
Mins og Júlía:)

Verið nú dugleg við að kvitta er alveg komin með nóg af þessum njósnurum sem a kvitta aldrei:evil:

 Kær kveðja og saknaðarknús Ásdís:lol:

ps klæðskiptingur tekur þátt í eurovision fyrir hönd dana díjj8|

 


» 25 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 22:27:43 / celeb

Dísa í world class..

Alltaf kemur það manni á óvart hvað tíminn líður hratt:) En ég er strax búin að vera hér í viku en finnst eins og að ég hafi verið að koma í gær.. Reyndar þá líður mér eins og að ég hafi bara búið hér allt mitt líf eða finn ekki fyrir miklum breytingum. Danmörk er ekki það frábrugðin Íslandi, kannski bara pínu stærri. Síðan er það ekkert verra hvað fólkið hér í Danmörku, sem að ég hef hitt allavega, er elskulegt;) 

En nóg af hjali..Helgin hjá mér var heldur í rólegri kanntinum (Allavega miðað við síðustu helgar sem að ég man eftir). Á föstudaginn var Hrund i fest þannig að Anders bauð nágrannanum honum Adam yfir (En hann var einnig konulaus) og þeir voru með hálfgert karlakvöld, og síðan var ég e-ð að sníglast þarna:) Þeir reyndu trekk í trekk að koma einhverju áfengu inn fyrir mína varir en ég hafði nú ekki list á því, reyndar var hann Adam búinn að vera að reyna það síðan um daginn hehe.. Ég var síðan bara eins og mesta nörd um kvöldið og var bara í tölvunni! *nördaglott* 

Á laugardaginn vaknaði ég síðan heldur snemma og fórum við í Fields, ég skoðaði (kannski sem betur fer) reyndar bara í vera moda og keypti mér nokkur föt þar;) Síðan var Hrund bara e-ð að vesenast:) Síðan gengum við frá kortinu mínu í fitness centre og á ég síðan bráðlega bókaðann tíma hjá einkaþjálfara víjjj ekki slæmt það, gangi mér samt vel að skilja hann hehe:D Síðan var ég bara eins og mesta nörd aftur:) Reyndar fékk ég síðan símtal frá Fríðu sem á heima í köben og var hún í einhverju rugli og ætlaði að plata mig með. Ég var alveg e-ð æst en afæstist þegar að ég fattaði að klukkan var að verða 11 og ég ekki búin að finna mig til og þorði síðan ekki að taka lestina út í miðbæ hehe ég er svo mikill kjúklingur, meina það hefði alveg einhver getað komið og rænt mér ?? Ekki satt??:) hehe 

Á Laugardagskvöldið fékk ég líka þá hugdettu eða var reyndar æst upp í það að koma í lýðskóla:)... Ég eyddi því töluverðu af kvöldinu í að skoða svona skóla og hvað væri í boði. Niðurstaðan er síðan sú að mig langar í svona skóla og á braut (ef það má kalla) sem heitir fitness instruktor. En þegar að maður er búinn með skólann er maður titlaður einkaþjálfari. Mig hefur nú lengi langað til að taka þannig kúrs og síðan held ég að það sé frábær upplifun af fara í svona skóla þannig að hví ekki að sameina þetta???:) Þá get ég unnið sem einkaþjálfari með skólanum held að það sé mjöööööggg nice vinna og ég hef pottþétt ótrúlega gaman að því.. En þetta er samt allt ennþá í vinnslu þannig að ég lofa engu.. Líka ennþá óvíst með þessa blessuðu háskóla, svörin frá þeim koma náttlega ekki fyrr en 28 júlí takk fyrir góðan daginn...!!! En ég er samt búin að fá bréf frá báðum skólunum um að það sé búið að móttaka umsóknina mína sem er ágætt... 

Sunnudagurinn var líka mikið chill hjá mér svaf fram á hádegi og það eina markverða sem gerðist var að Hrund rölti með mig litla kjúlla út á lestarstöð til að sýna mér hvernig þessar lestar virka:) Það er taka lest er náttlega jafn auðvelt og að smyrja sér brauð!! Díjjj hvernig átti ég að vita það:) Þannig að við fórum út í bæ og þar fór ég í ansi hressa passamyndatöku, en kassarnir hér eru e-ð öðruvísi en heima. Hrund var e-ð búin að vara mig við og sagði mér að vera viðbúin, ég bara já okey, hef alveg farið í svona áður. Allavega var ég alltaf að bíða eftir því að það myndi koma mynd af mér í skjánum, þannig að ég beið bara sallaróleg og var e-ð að horfa í kringum mig þegar að allt í einu kom þetta þvílíka flass, og af því að Hrund var búin að vara mig við þessu þá fór ég að hlæja og kíkti út og var e-ð að segja Hrund frá þessu þegar að allt í einu kemur annað flass og ég hendi mér inn í kassann og rétt náði að vera inni á myndinni og er svona skemmtilega hlæjandi á þeirri mynd;) 

Dagurinn í dag er síðan búinn að vera hinn venjulegasti fór í gymið og síðan bara e-ð að vesenast við að sækja um í lýðskóla og auðvitað leika við krakkana;)

Síðan er útborgunardagur núna í dag þannig að ég mætti alveg fara að missa mig í búðum í vikunni:) Það er allavega á planinu að fara út í bæ og skoða:) Næsta helgi sem er btw löng helgi þ.e. frí á föstud, verður síðan kannski e-ð fjörugri því að núna kann ég allavega að taka lest;) En það kemur allt saman í ljós þegar nær dregur.. 

Og já alveg rétt ég er búin að selja bílinn minn hann Emma sem er nokkuð gott því að hann fór út á sölu á miðvikudaginn;) Greinilegt að svona gullmolar stoppa ekki lengi á sölu hehe..þannig að ég er voðððða happy:) Reyndar er ég sár yfir því að fá ekki að keyra hann aftur uhhuuuu.. :( 

Síðan fjölgar alltaf litlu krúttunum í kringum mann og er Rakel búin að eignast þennan fullkoma strák;) Leiðinlegt að ég hafi ekki fengið að sjá hann áður en ég fór út, en það bíður þá bara betri tíma;) 

Ég bíð síðan spennt eftir öllum danmerkurförunum, bæði þeim sem eru að fara að flytja hingað og líka þeim sem að ætla að heimsækja mig!!!;) Helgin 25mai-27mai er allavega bókuð af Gerði og Guðný ekki slæmt það...og ég tek síðan við bókunum í gegnum msn hehe:) 

Jiiiiiii svo er Raularinn núna í kvöld og Guðný að taka þátt í honum.. Mig langar að vera þar núna:) Ég treysti því að þær stelpur taki þetta með trompi:)  

Núna á ég engar skemmtilegar myndir því að ég var svo súper róleg um helgina... 

En jæja þetta er orðið svo langdregið blogg að það nennir örugglega enginn að lesa það:) En það er samt sama regla og áður!!!

KVITTIÐ fólk!!!!

Því að annars hætti ég að blogga múhahahaha.... 

Venlig hilsen Ásdís;)
ps það eru ekki sundlaugar í Danmörku díjj!!:$



» 26 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 18:23:36 / celeb

Baunalandið..

Jæja aðsóknin inn á síðuna er e-ð farin að aukast og býst ég við að það sé vegna þess að fólk bíður örvæntingafullt eftir bloggi frá mér úr Danalandi:) 

En af mér er allt gott að frétta:) En hér hefst frásögn af mínum fyrstu dögum hér í DK... 

Allt saman byrjaði þetta á flugvellinum þar sem að ég var auðvitað með yfirvikt og þurfti því að borga e-ð út af því, slapp samt mjög vel:).. síðan fór ég í gegnum eftirlitið, en þar sem að ég var með tvör troðnar töskur í handfarangri þótti ég e-ð grunsamleg og fór því kallinn að gramsa í töskunum mínum og þar fann hann fullt af ,,vökva” en ég var svo mikill kjáni að ég hélt að þetta massað eftirlit væri búið þ.e að ég mætti alveg fara með þetta í gegn:) þá þurfti ég að hlaupa með aðra töskuna niður og tékka hana inn í farangursrímið. Flugið gekk vel og svaf ég allann tímann:D Síðan þegar ég lenti og var loksins komin í gegnum flugstöðina tók Anders á móti mér en hann hélt á miða sem á stóð nafnið mitt hehe soldið kjánalegt en jæja:) 

Síðan brunuðum við heim í Bröndby Strand nánartiltekið Silervej 3. Þetta er rosalega flott og stórt hús á tveimur hæðum og síðan er kjallari og mjög stór og góður garður. Anders sýndi mér húsið og tæknina í því en það er e-ð voða sístem í sambandi við ljósin. Herbergið mitt er síðan í kjallaranum en það er mjög stórt og gott að vera í því, fínt að vera út af fyrir sig:) 

Þennan dag gerðum við nú lítið nema ná í krakkana á leikskólana, labba út á strönd og borðuðum grillaðan kjúlla úti. Bara nice að hafa strönd hérna rétta hjá með hvítum sandi ummm....:) og síðan er ekki slæmt að geta borðað úti í öll mál því að það er bara alltaf gott veður og þá er alltaf grillað.. 

Krakkarnir eru ótrúlegar dúllur og svona þegar ég er farin að skilja þau pínu betur held ég að við verðum bestu vinir, ekki það að við séum það ekki núna eða allavega þá eru þau alltaf e-ð að knúsa mig sérstaklega Daniel en hann er elstur:) Og fólkið sem ég bý hjá er líka mjög nice og held ég að ég sé bara mjög heppin með fjölskyldu allavega finn ég ekki að neinu:) 

Dagurinn í gær fór síðan í e-ð stúss.. Ég fékk danska kennitölu, fór í studioskolen en það er málaskóli og tók ég smá könnun þar sem að ég stóð alveg á gati í:s átti að skrifa e-ð um sjálfa mig og af hverju ég væri hér á dönsku og það var mjög erfitt þar sem að ég hef ekki skrifað dönsku í 3 ár... en allt í góður ég er komin á biðlista og það verður hringt í mig þegar það losnar. Þessi skóli er í miðbænum og það verður voða nice að komast þangað á hverjum virkum degi.. Þessi miðbær er náttlega bara æðislegur svo ótrúlega margt að skoða og búðirnar díjjjj manni langar bara að missa sig í þeim, en ég ætla að geima það þangað til um mánaðarmót:) Síðan fórum við og skoðuðum gym sem er rétt hjá leikskólanum þar sem að ég sæki tvíburana á.. mér líst mjög vel á það þó að það sé ekki stórt á dönskum mælikvarða þá er það samt margfallt sinnum stærra en styrkur, kannski alveg hægt að miða út frá honum þar sem að hann er örugglega minnsta líkamsræktarstöð í evrópu hehe.. En við förum líklegast bara á eftir og kaupum kort í hana en þau ætla að splæsa því á mig sem er nú ekkert verra.. 

Í dag var svona fyrsti vinnudagurinn hjá mér. Ég vaknaði klukkan 7 og fór á fætur og tók á móti börnunum og gaf þeim morgunmat og klæddi þau. Síðan fóru þau á leikskólann, ég var hinsvegar bara e-ð að dunda mér við að taka til og þrífa húsið en var svo öflug að ég tók alla fyrstu hæðina í gegn:) Síðan um hádegi fór ég bara út í garð og lá þar á teppi og sleikti sólina en það var allavega 20°C hiti í dag. Um hálf 4 tók ég síðan fram gula fákinn minn en það er reiðhjól með aftaní vagni en hann nota ég til að ná í tvíburana á leikskólann, en það er bara mjög gaman að nota það enda allskona hjólabrautir og ekki langt í leikskólann:) Síðan komum við heim og lékum okkur í garðinum þangað til að krakkarnir flúðu yfir til nágrannans hans Adams en þú dýrka hann öll, þannig að ég bara fylgdi og var e-ð að leika með þeim og litla barninu hans honum Mates (hvernig sem það er skrifað). Síðan þegar fólkið kom heim var bara pönntuð pitsa og hún borðuð úti í garði.. 

En þetta er svona report frá því sem að ég hef verið að gera síðustu 3 daga gæti auðvitað skrifað endalaust þar sem að ég hef ekki bloggað í mánuð og það hefur ótrúlega margt skemmtilegt gerst á þessum mánuði:) Þar má helst nefna: páskarnir með öllu sínu djammi og böllum bæði í Inghólfshvoli og Njálsbúð, Road trip hjá mér og Esteri þar sem margt bara upp á, geðveikt skemmtilega Akureyrar ferð og söngvakeppni, myndataka með Esteri hjá Sævari sem var fjörug, fótboltaball kvöldið fyrir sumardaginn fyrsta, kveðju kvöldverður með stóru systrum mínum, kveðju djamm og farið á peiker, út að borða í Perlunni, djamm í rvk, ferming hjá Gaua lita bró, Ragna systir fæddi strák sem nefndur var Mikael Breki, nudd og dekur í laugum spa og síðan smá kveðjuhóf heima hjá mér kvöldið áður en ég fór:) Ég kannski set inn myndir frá þess inn á síðuna ef ég hef þolinmæði til þess...:) 

 

Ester á leið á Á móti sól ball:)
 
Við Ester í road trippi:)
Frændsystkini á á balli í Njálsbúð:)
Ég og Palli á AK;)
 
Ég og Ester mín:*
Við að fara á sumarball;)
Guðný og Fúsi á leið á pakkhúsið..
Við systkinin fyrir ferminguna hjá Gaua spauja..

En ég kveð að sinni, þið heima þurfið allavega ekki að hafa áhyggjur af mér hérna þetta er allt saman eins og best verður á kosið..:) 

Verið nú dugleg við að kvitta svo að ég verði dugleg við að blogga, þetta helst jú í hendur... 

Kveðja Ásdís í baunalandi;)


» 25 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 01:21:05 / celeb

hæ hó;)

Jæja helgin liðin og það fer að koma að því að þessum mánuði ljúki...

Ekki er það slæmt þar sem að apríl kemur færandi hendi með páskafrí, fermingu hjá litla brósa og ég að fara að FLYTJA til DANMERKUR já þið lásuð rétt ég er að fara að flytja þangað nánar tiltekið í hina ástsælu KÖBEN en þar ferð ég í Bröndby Strand... MJÖG nice húsið stendur sem sagt c.a 100 metra frá strönd og er allt hið flottasta.. herbergið mitt verður ekki af verri kantinum en það er yfir 20 fm og voða flott ég hef sko nægt páss til að leyfa öllum að gista hjá mér;) Þarna úti er ekkert voða mikið sem ég þarf að gera þannig séð þannig að þegar að ég er ekki með börnin þá verð ég í tungumálaskóla og líklegast bara í ræktinni en það er víst voða flott líkamsræktarstöð við leikskólann þar sem að ég sæki tvíburana alltaf:D Síðan verður æði að vera þarna í sumar því að þau eru með stórann garð og alveg við ströndina þannig að ég og krakkarnir höfum ekkert betra að gera en að sleikja sólina;) Hrund konan sem ég er að fara til var einmitt að segja mér að það sé komið sumar í Danmörku núna og eru hún og krakkarnir búnir að eiga heima í garðinum alla helgina:)Ég er allavega þvílikt spennt fyrir þessu öllu saman get varla beðið eftir því að fara.... Hér koma nokkrar myndir úr Danaveldi:)

Ótrúlega cosy herbergi;)
Hinn helmingurinn:)
Og húsið að utan, bara sætt:)

Síðan vorum við Gerður elskan að ræða það í gær að víst að ég væri nú að fara að yfirgefa landið í nokkra mánuði jafnvel nokkur ár ( þó að ég komi auðvitað reglulega heim) þá verður nú að halda e-ð kveðju teiti.. ég held að það verði bara stefnt að því helgina áður en að ég fer út þ.e fermingarhelgina hjá litla brósa hvað á ég að segja 19 apríl;) Eða þetta kemur bara í ljós þegar nær dregur;) 

Síðan eru að koma páskar víst en mér er samt næstum búið að takast að klára páskaeggið mitt... sem er btw besta páskaegg sem að ég hef á æfinni fengið. Ég og Esteri mín fórum sko spes ferð í KOLAPORTIÐ til að kaupa það en það var nú heldur betur skemmtileg ferð og sáum við margt skemmtilegt, ætlum sko pottþétt að gera okkur ferð þangað aftur fljótlega og taka með myndavél og mynda okkur í þessum skemmtilegu fötum sem eru til sölu þarna;) margt gullið sem leynist þar skal ég ykkur segja;) Eftir að hafa eytt tíma þarna fórum við síðan að fá okkur að borða og enduðum á því að pannta okkur pitsu á Reykjavik pizza company held ég.. en á matseðlinum var hægt að velja pitsu þar sem að kokkurinn fékk alfarið að velja áleggið á pitsuna... Ester var auðvitað æst í þessa pitsu og pönntuðum við því hana, síðan biðum við örvæntingafullar eftir dýrðinni... Bakarinn hlýtur að hafa viljað gera grín að okkur því að hann setti allt mögulegt á pitsuna og fæst var ætt:P Esteri gerði sé lítið fyrir og rétt smakkaði og var þá næstum búin að æla;) ég hins vegar reyndi að éta þetta enda var þetta alltí læ allavega þegar að maður var svona svangur:P 

Siggi Aðeins OF myndarlegur;) top módel...

En jæja þessi helgi er ekki frásögufærandi nema þetta átti að vera edrú helgin mín sú fyrsta já í einhvern tíma.. þannig að til að vera save á því ákvað ég að leika við hana Gerði mína og Sigurð Darra og vera þá bara í mömmó:) En Gerður náði heldur betur að æsa mig og fórum við á krúsina þar sátum við með einhverju skrítunu fólki og voru gellurnar á næsta borði heldur betur æstar:D Þarna sátum við fram eftir kvöldi og röðuðum í okkur beilís út í swiss mokka a la Kristján og vorum eins og fínar frúir;) Síðan kíktum við á pakkhúsið og var það ekki svo gaman, held að það sé bara l8ter á þetta fjandans pakkhús..En alltaf gaman að hitta fólkið þar:) síðan var það pulló og var Hildur sæta æst í að henda pulsum í mannskapinn... Síðan skildust leiðir okkar Gerðar og fór hún heim að sinna manni og barni en ég hitti á Esteri mína og gæja frá henni og héldum við að stað hlaupandi út í óvissuna og enduðum á já ég segi ekki meir. Síðan varð Esteri æst í einhvern kúreka sem var á reiki á austurveginum og hljóp hún á eftir honum og ég auðvitða líka og náði ég nokkrum myndum af þeim saman;) sérstaklega myndaregur gaur þar á ferðinni;) Síðan fékk ég litlu ráðið um framhaldið en við enduðum í skítabæli þ.e þorló:S ég kom síðan ansi kát heim soldið þreytt og fór að sofa enda að fara að vinna kl 12:) 

 

Gerður og ég að fara út;) 

 

Mikill hjónasvipur á þessum:D

En allavega þá er allt að gerast og ég verði að selja lita sætasta bílinn minn hann Emma hann hefur heldur betur þjónað sínum tilgangi þetta ár sem að ég er búin að eiga hann og á ég eftir að sakna hans mikið:( ef að það er einhver þarna út sem að langar í skoda fabiu 2005 ekinn 36 þús þá má sá sami gjarnan hafa samband og ég er tilbúin að skoða það að ættleiða þennann dýrgrip minn;)

Jæja ætli þetta sé ekki gott í bili orðið heldur betur löng og góð færsla... 

Ég kveð að sinni og fólk getur bara farið að hafa samband við mig ef að það er að plana það að koma til köben í sumar því að þá er auðvitað skylda að hitta mig:D:D 

Kossar og þúsund knús;) Ásdís hin DANSKA:D:D:D 

ÉG VIL FÁ KVITT FRÁ ÖLLUM:)

ég bendi síðan á myndir helgarinnar og fleiri myndir hér til hliðar:D


» 29 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 19:29:43 / celeb

Danmörk varaðu þig:)

Hæhæ kominn tími á smá skýrslu frá mér.... 

Það ber helst til tíðinda að ég er loksins búin að sækja um í háskólunum í Danmörku í tannlæknanámi og núna krosslegg ég bara fingurnar og vona að ég komist inn.. þetta er sko búið að vera þvílíkt vesen en einhvernveginn gekk þetta allt upp í dag og ég náði út á pósthús fyrir kl hálf 5.. Enda fékk ég mikla hjálp:) Ég viðurkenni það samt að ég hef aldrei verið jafn stressuð eins og í dag og í gær:S díjjjj....

 

Síðan gæti bara vel verið að ég sé á leiðinni sem au-pair til DK seinna í þessum mánuði eða í apríl það kemur fljótlega í ljós en ég er samt alveg e-ð spennt fyrir því enda ekki langur tími sem ég myndi vera, væri meira eins og að taka sé sumarfrí...

 

Síðan er ein önnur skemmtileg helgi framundan en loksin er komið að því að Ester taki þátt í ungfrú Suðurland og ætlum við stelpurnar auðvitað að fara að horfa á skvísurnar enda þekkir maður eða kannast við lang flestar þarna... Ég var einmitt að skoða matseðilinn sem verður á keppninni og hann er ansi girnilegur nammi nammi... gaman að geta bara setið og étið meðan að Ester sprangar sig um á bikiníi hihi;)

 

 Á laugardaginn vorum við Ester síðan búnar að plana að fara á djammið í Reykjavík og vonandi verður hún með kórónu á höfðinu hehe..:) segi svona...

 

Mins kíkti síðan í pjöllubústaðinn á föstudaginn ásamt Guðný og var það ansi gaman enda var fólk í ruglinu þar.. nefni engin nöfn en það var einhver fylliraftur sem að hellti í klofið á mér eins og fullum breezer hehe:) Ég þarf síðan að fara að setja inn myndirnar sem ég tók þá... En hérna kemur smá brot af myndum föstudagskvöldsins:)

 

 

Sigurður Darri bara dúlla í þessum náttfötum   

Búálfurinn og Andrea hressar í bústað:) 

Jóna og Þorgerður búnar á því eftir twister:) 

En það sem að eftir lifir viku verð ég bara í leiksólanum mínum að suma og kubba ekki slæmt það.. sérstaklega þegar það fer að líða að lokaprófunum hjá þeim sem eru í skóla:) fyrsta skiptið mitt í 14 ár sem að ég er ekki að fara í neitt einasta próf vííííí..... Verið nú dugleg að kvitta...  

Kveð að sinni Ásdís tilvonandi tannlæknanemi (vonandi fljótlega) :)


» 21 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 23:05:13 / celeb

tjúttitjúttidansidansi

Jæja helgin búin og má segja að þetta hafi verið skemmtilegasta helgi sem ég hef átt í mjög langann tíma;) 

Þetta byrjaði allt saman á föstudaginn þegar að ég brunaði í Rvk til helgu og var ferðinni síðan haldið í afmæli hjá Versló peyja að nafni Gunna... Þar voru fullt af veitingum og mjög gaman..En myndirnar ættu að tala sínu máli sem eru hér á síðunni... Síðan stungum við af með leygubíl og pikkuðum upp Steinþór og vin hans og var ferðinni síðan haldið út í bæ.. þar var MIKIÐ dansað og mikið stuð...Ég hef ekki dansað svona mikið geggjað lengi og er lag helgarinnar að mínu mati ,,Stanslaust stuð” með Páli vini mínum Óskari ég fer ennþá öll á ið þegar ég heyri það hehe... Þegar leið á kvöldið færðum við okkur síðan af sólon og yfir á pravda og enduðum á Hressó.. og auðvitað hitti ég fullt af kunnulegum andlitum þar;) Okkars voru síðan bara þægar og vorum við komnar heim fyrir klukkan 5 sem er ekki slæmt...

 

 

Okkars í afmæli:)

   Á laugardaginn fór ég síðan í skírn hjá Helgu systir og var gullmolinn skírður Andri Liljar fallegt nafn á fallegann strák;) 

Ég og Andri Liljar:)

Síðan fórum við Helga að finna okkur aftur til og var förinni heitið heim til Gerðar og og e-ð skrall...Það var auðvitað geggjað gaman hjá okkur og var ég sko komin í dansgírinn heima hjá Gerði, en á meðan að þær töluðu um meðgöngu og fæðingu var ég ein e-ð að dansa í mínum heimi, gaman að því;) Við fórum síðan á Krúsina en þar var allt stappað og Gústi okkar Lill hélt uppi stuðinnu.. þar var hellingur af fólki sem við þekkjum og var því mikið spjallað.. Guðný var tvímælalaust beiler kvöldsins og var farin heim kl 1??? Má það eða?? NEI hélt ekki!!!!!!! Hinar entust nú e-ð lengur.. kvöldið endaði síðan í pulló með Garðari og fór síðan heim að kúra með Helgu.. beilaði á eftirpartýi hjá Yrsu sem einhver var að reyna að æsa mig í að fara í, en það er bara kúl að beila á svoleiðis:) 

Sunnudagurinn einkenndist síðan af því að ég nördaðist og afrekaði að fara í sund enda fínasta sumarveður í dag;) 

Ég er full tilhlökkunar fyrir næstkomandi viku og er farin að bíða eftir næstu helgi heheh... og síðan fer að styttast í atburði eins og pjöllubústað og ungfrú Suðurlands;) vííí........ 

Verið dugleg við að kvitta og athugið myndirnar hér til hliðar;) 

Kveðja Ásdís Tjúttari!!!;);)


» 16 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 21:56:28 / celeb

Fallegasti strákurinn í öllum heiminum:)

Kv, Gerður the made af celeb :):)


» 14 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 20:47:57 / celeb

Tungusel....

Okey þá víst að þessar stelpur geta ekki bloggað þá skal ég koma með enn eina færsluna... 

Vikan byrjaði á því að Helga stóra syss eignaðist þennan sæta strák og sitt fyrsta barn og fór ég og skoðaði strákinn á mánudaginn, algjör dúlla.. á reyndar alveg eftir að kíkja aftur það er bara e-ð svo mikið að gera hjá mér þessa dagana:(

 

 

  Bara dúllurass:) 

Síðan var vikan nú nokkuð róleg fór til Víkur um helgina og var í góðu yfirlæti hjá hjónakornunum Fúsa og Guðný á Brekkum.. gerðum reyndar óskup lítið framan af heldur en að vera löt og éta;) Á laugardagskvöldið var síðan mikið fjör.. Við byrjuðum að skralla á Brekkum og var ferðinni síðan heldið í partý Vík, þaðan fórum við síðan með rútu á ballið og var sko mikið gaman í rútunni enda gítar með í för.. þegar komið var á ballið voru allir orðnir vel í því og byrjaði þetta allt saman á því að ég á að hafa snappað á einhverrri gellu sem er nú frekar ýkt;) enda rennur varla í mér blóðið eins og þeir sem mig þekkja vita hehe.. segi svona:) síðan var bara dansað dansað og aftur dansað... Einn herramaður frá Selfossi var þarna og má segja að hann hafi verið í essinu sínu og hlógum við Guðný mikið yfir því sem valt upp úr honum, förum ekki nánar út í það:) Það má segja að allir hafi verið í þvílíkum gír þarna enda er fólk brosandi út af eyrum á öllum myndum sem að ég hef séð af þessu balli;) gaman að því.. Allavega þrusu ball hér á ferð:) Ég ætlaði að vera þvílíkt góð og tók myndavélina með mér, en greyið klikkaði e-ð áður en að við svo mikið sem komust út úr húsi ekki nógu gott sko:S þannig það er ekki mikið um myndir en ég set kannski eins og eina inn af Guðný sætu minni:)

 

 

  Guðný sæta;) 

Vikan er síðan óráðin, en við Ester ætlum allavega pottþétt að fara í vikunni í Laugar og kíkja í spa dæmið þar;) eigum það skilið hehe..  

En díjjj hef ekki meira að segja.. Vinsamlegast kvittiðfyrir að hafa lesið þetta ,,spennadi blogg” jeje... l8ter;)

 

 

 

  Stal þessari frá Helenu við erum bara of hressar á henni;) 

Kveðja Dísa fighter8)


» 28 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagar s�?�?�?­�?�?�?°an �?�?�?©g kom til DK..
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734529 dögum
Dagsetning
28. janúar 2012
Fróðleikur!!
Klukkan
Ni�?�?�?°urtalning!!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1714 dögum